24.1.2006 | 14:36
6. blogg frá Caerdydd, Cymru
Það verður að segjast eins og er að “Skæpið” (e: Skype) er sennilega merkilegasta nýjungin, ef nýjung skyldi kalla, sem netið hefur fært okkur nýjungagjörnum og samskiptaháðum mannverum síðustu árin. Þetta fyrirbæri gerir fólki kleift að ræða saman eins og í síma, endurgjaldslaust, en í sínu kjörumhverfi, þ.e. fyrir framan tölvuna. Það er hægt að þykjast vera upptekinn ef maður er ekki upptekinn, maður sér hver er að hringja og svo eru gæðin bara stórfín. Og kostnaður við að hringja í venjulega síma er hverfandi miðað við almenna símkerfið. Ég er búinn að tala til Íslands í þrjá – fjóra klukkutíma fyrir 4 GBP eða 440 Íkr. Þetta er líka góð áminning um það að tæknin er fljót að útiloka gamla tækni sem okkur þykir sjálfsögð. Sannið þið til, heimilissímar verða óþekktir eftir 5 ár. Og tölvupósturinn sem er að verða SPAM að bráð hlýtur að breytast hratt. Hvað kemur í staðinn? Það veit ég ekki. Kannski hugsanaflutningur.
Hvað finnst ykkur um skólabúninga? Mér finnst þetta frábært fyrirkomulag. Það þarf ekki einu sinni að velta vöngum yfir því hvað á að fara í þennan morguninn, eitthvað sem breytir háralit fjölda foreldra með tímanum í grátt. Auðvitað er þetta n.k. einkennisbúningakerfi eins og í hernaði en þó ristir það dýpra. Stríðni vegna klæðaburðar nánast hverfur, “hann á svona, mig langar í svona” umræða sömuleiðis. Ég skora á ykkur foreldra að berjast fyrir skólabúningum í íslenskum grunnskólum, ég er afar hlynntur þessari stefnu fyrir neyslubrjáluð þjóðfélög eins og á Íslandi. Þetta eru ekki bara jakkar og bindi, pils og skyrtur. Nú eru þægilegar einfaldar peysur í umferð með merki skólans, buxur eða pils. Reyndar eru reglurnar talsvert strangar, svartir skór en alls ekki hvítir strigaskór. En það er líka fínt, gott fyrir agann, sem við fáum í afar litlum skömmtum.
Hugsið ykkur ef opinber skjöl og birtingar á Íslandi verða öll á ensku og íslensku, eða dönsku og íslensku. Einkaútvarpsstöðvar alfarið á ensku en litla RUV á íslensku. “Beware (í:Varúð).”
Breytt 31.3.2006 kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2006 | 20:25
5. blogg frá Caerdydd, Cymru
Dýragarðurinn minnir borgarbúa á að maðurinn býr ekki einn á þessari jörð. Þetta er auðvitað ekki mjög alvarleg áminning en þó sennilega mesta nálægð sem fjölmargir komast í við eitthvað sem kalla má náttúra. Alls ekki náttúrulegt umhverfi en lifandi verur og flestar frá framandi stöðum. Heimsókn á þennan stað getur því vakið forvitni um fjarlæga eða framandi staði og þannig orðið til þess að fólk fær áhuga á að kynna sér málin frekar. Við skelltum okkur nefnilega í dýragarðinn í Bristol. Ljón og flóðhestar. Górillan var samt best, svo laus við stress.
Aftur að málinu hér í Cymru. Ég þori nokk að fullyrða það að allt sem hér er gefið út af hinu opinbera eða í tengslum við opinbera þjónustu hvers konar er á tveimur tungumálum, cymraeg og ensku. Gleymdi að nefna það að velska er af keltneskum uppruna og hefur sama stofn og bretónska handan við sundið og hin gelísku mál í Írlandi og Skotlandi. Skilst hún sé líkari bretónsku. En þetta er talsverður kostnaðu fyrir þetta litla samfélag. Skondin fannst mér auglýsingin og lýsingin á tungumálanámskeiðum í velsku í blaði frá háskólanum. Allt saman á velsku. Ef mig langar að læra velsku þá skal ég gjöra svo vel að læra velsku fyrst svo ég geti fundið mér námskeið þar sem kennd er velska.
Frónbúum til hughreystingar þá spáir hann kólnandi, jafnvel snjó seinni part vikunnar.
Breytt 31.3.2006 kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Bjössablogg
Tenglar
Mínir nánustu
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar