Færsluflokkur: Dægurmál
6.12.2007 | 09:14
Verndarsvæði á stærð við Ísland
Kanadamenn hafa ákveðið að friða stórt svæði innan barrskógabeltisins við norður-heimskautsbaug fyrir auðlindavinnslu til iðnaðar (lausleg þýðing bloggara). Þetta svæði er 25 milljónir ekra eða rúmir 100 þús km2. Það er nánast eins stórt og Ísland og á við 11 Yellowstone þjóðgarða. Þetta hlýtur að teljast nokkuð merkileg ráðstöfun á landi, þó Kanada sé reyndar æði landstórt.
Verndun verður mismunandi eftir svæðum, að hluta þjóðgarður og að hluta verndarsvæði í umsjá heimamanna. Sjá frétt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.12.2007 | 08:31
Þörf ábending
Það er gott þegar einhver gefur sér tíma til að reikna. Það er sjálfsagt auðvelt að bera brigður á þessar niðurstöður en það er hins vegar staðreynd og þörf á að vekja athygli á því að þær aðferðir sem notaðar eru við fæðuframleiðslu í heiminum eru orsök mjög stórs hluta af útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Þetta á einkum við fæðu sem kemur úr þauleldi eins og kjöt af ýmsum toga. Þess vegna kemur maður að því enn og aftur að neysla á fæðu sem er neðar í fæðukeðjunni s.s. grænmeti og ávöxtum orsakar minni losun. Eftir því sem hlutfall þessarar fæðu eykst á kostnað þessara þauleldiskjöttegunda þá minnkar losun. Hins vegar má ekki setja samasemmerki á milli allra kjöttegunda. Dýrategundir sem ganga úti og éta gras mestan hluta ársins eru sennilega umhverfisvænstar, svo fremi þær valdi ekki ofbeit og þannig losun. Þær nýta sér gróður sem maðurinn getur ekki nýtt sér og oft er um að ræða búskaparhætti sem valda ekki miklu álagi á umhverfið. Búskapur sem byggir á því að ala gripi á kornmeti, sem maðurinn gæti nýtt sér beint, kemur yfirleitt lakar út í þessum samanburði. Eitt hef ég þó lært á minni stuttu ævi og það er að alhæfingar eiga afar sjaldan við. Þær geta hins vegar verið ágætar til að vekja athygli á tilteknum málum.
Annar þáttur tengdur fæðu sem ræður miklu um losun gróðurhúsalofttegunda er flutningur fæðunnar frá brunni að grunni, frá uppruna til neytanda. Það eru ein mjög góð og gild rök fyrir upprunamerkingum fæðu. T.d. er almennt umhverfisvænna fyrir fólk búsett á Íslandi að neyta fæðu sem framleidd er á Íslandi, kannski ekki algilt en á við í flestum tilvikum. Semsagt, nær-ætur (locavores) sameinumst!
Ganga skaðlegri en akstur? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2007 | 15:55
Styrr um Bitru
Óábyrgt að halda áfram með Bitruvirkjun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2007 | 09:13
Hið dimma Ísland
Hjólaði í morgun í suddanum, þéttur úði og þoka, svo ég varð rennandi blautur, gleymdi aukasokkum og inniskóm.
Merkilegt með Íslendinga. Ég mætti fjórum eða fimm hjólreiðamönnum á leiðinni. Allir voru ljóslausir, utan einn sem skartaði nánast batteríslausu ljósi. Í þessu landi myrkursins ætti að vera nánast óhugsandi að vera á ferðinni án ljóss. Annað mætti flokka undir leiða á lífinu eða góðri heilsu.
En þeir sem hjóla dags daglega til og frá vinnu á höfuðborgarsvæðinu eru ekkert annað en hetjur. Það eru sennilega vandfundnar jafn erfiðar og leiðinlegar aðstæður til að hjóla en hér á suðvesturhorni Íslands. Illa samræmdir eða engir hjólastígar. Rigning, mótvindur, brekkur og ljóslausir hjólreiðamenn. En, ég verð að hrósa bílstjórum á svæðinu. Þeir hafa sýnt mér mikla tillitssemi, þvert á það sem ég bjóst við. Kannski er það vegna þess að þeir sjá mig?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2007 | 08:35
Huggulegur rigningarmorgun
Það var notaleg rigningin í morgun, féll nánast beint niður, kyrrlát og ljóðræn. Vel við hæfi á þessum degi. Þetta minnti mig samt á útlönd satt best að segja, m.a.s. Cardiff kom upp í hugann þegar ég settist inn í strætó. Alltof sjaldan sem maður getur gengið út í svona huggulega rigningu hér heima.
Svo fór ég að leiða hugann að því að í strætó í Cardiff voru bara einar útgöngudyr í flestum tilvikum. Þetta leiddi til þess að notendur þurftu að taka tillit hver til annars þ.e.a.s. Þeir sem ætluðu inn þurftu að bíða eftir þeim sem ætluðu út. Svo átti maður ávallt leið framhjá bílstjóranum en eins og ég bloggaði um í fyrndinni, þá eru velskir strætóbílstjórar mjög kurteisir upp til hópa. Þar tíðkast að kveðja, "tata" eða bara "thank you". Mér var sumsé hugsað til þessa þegar ég fór úr strætó við Höfðatorg, að aftan, án þess að yrða á bílstjórann og þakka honum fyrir.
Sennilega eru almenningsvagnar hér á landi almennt of stórir. Maður fyllist einmanakennd ef mjög fáir eru í vagninum og allt að því óöryggi. Þetta er því vart hvetjandi umhverfi til að örva notkunina á kerfinu.
En ég segi það enn og aftur, ég er tilbúinn að borga fyrir góða þjónustu almenningsvagna, sem skilar mér fljótt og vel á áfangastað og ég verð ekki úti þó svo ég missi af vagninum og þurfi að bíða eftir næsta.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2007 | 20:13
Loksins farinn að hjóla
Það er reyndar þónokkuð síðan ég hjólaði fyrstu ferðina í vinnuna en hef sumsé ekkert bloggað ansi lengi. Þetta er fín leið í gegnum Seljahverfið, Elliðaárdalinn, yfir Miklubraut, framhjá Glæsibæ, niður Laugardal, gegnum Teigana, yfir Kringlumýrarbraut, inní Túnin og kominn! Þetta eru tæpir 10 km og tekur 25 mín að hjóla.
Nú kemur reyndar í ljós að ég á ansi lélegt hjól því þegar fer að reyna eitthvað á kvikindið þá bilar eitthvað. Þannig er gírskiptihandfangið búið að brotna, sprungið einu sinni og gírarnir orðnir ansi ruglaðir. Þetta stendur þó allt til bóta og ég ætla að hjóla öðru hverju á meðan ekki er snjór og hálka. Nenni ekki að skipta yfir í nagla.
En af þjóðmálunum þá velti ég því fyrir mér á hvaða gríðarlegu þekkingu á jarðhitamálum Íslendingar ætla að byggja í þessari útrás. Mér vitanlega er afar takmörkuð menntun í boði hér á landi á þessu sviði og fáir sérfræðingar sem eru einhvers megnugir á þessu sviði. Þetta er reyndar umhugsunarefni fyrir háskólana alla, hvort ekki ætti að leita til orkufyrirtækjanna um stuðning við kennslu á sviði jarðhitanýtingar til að byggja upp stærri hóp sérfræðinga á þessu sviði hér á landi.
Varðandi umhverfismálin, þá er ég afar ánægður með að margir láti sig þau varða eins og Bitruvirkjun ber vitni um. Það má líta til úrskurðar Skipulagsstofnunar vegna rannsóknaborholu í Grændal í þessu samhengi en Skipulagsstofnun lagðist gegn þeirri framkvæmd, þó umhverfisráðherra leyfði hana með skilyrðum. Bitruvirkjun er í raun ekki svo ólíkt mál, mikil náttúrufegurð, mikil útivist og ferðamennska, líffræðileg fjölbreytni o.s.frv. En pólitík er kannski full fyrirferðamikil í ákvörðunarferlinu, nema lýðræðið komi til bjargar. Við sjáum að sveitarfélög á Suðurnesjum vilja t.d. ekki raflínur í sínu landi. Það er kannski lítill vísir.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2007 | 15:31
Góður laugardagur
Dagurinn í dag er svona góður laugardagur. Vaknað snemma með stelpunum, gefa þeim að borða, horfa með þeim á barnatíma og lesa blöðin, sötrandi kaffi (sleppti bjórkvöldi í gær). Fara í ræktina undir hádegi, fá sér "boost" í hádegismat, hnetur og rúsínur, epli o.fl. hlusta svo á tónlist í rólegheitunum. Stilla gítarinn og bassann, spila lítið eitt með Birnu. Það er gott að fletta í henni með lagaval, það er eins og hún læri eitt lag á dag og textarnir buna út úr henni. Þá er ábyrgðarhluti að gefa börnunum ekki tækifæri á að hlusta á tónlist frá hinum ýmsu tímabilum, straumum og stefnum. Svo er matur hjá tengdó á eftir svo það þarf ekki einu sinni að elda.
Nú styttist í að ég verði grasekkill þegar frúin fer í námsorlof til Cardiff. Kvíði því talsvert en eins og ég hef ritað áður þá getur svona fjarvera verið til að styrkja sambandið (sem er bara eitthvert Pollíönnu kjaftæði).
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2007 | 10:45
Gjaldfrjáls strætó
Nú hef ég hingað til ekki verið talinn til sjálfstæðismanna. Í þetta sinn get ég þó tekið undir með þeim. Málið nefnilega snýst ekki um hvort almenningssamgöngur eru "ókeypis", því ekkert er ókeypis. Málið snýst auðvitað að nokkru leyti um upphæð gjaldtöku en einnig um þjónustu og gæði hennar. Ég er mikill strætómaður og legg mitt af mörkum til að nýta þá þjónustu. Ég keypti mér níu mánaða kort og hugsa því lítið um gjaldið nema að því leyti að ég reyni nú að nýta þjónustu strætó við hvert tækifæri. Það sem nú vantar uppá er að strætó geti boðið upp á skilvirkari þjónustu, tíðari ferðir og meiri hraða. Almenningssamgöngur þurfa að vera jafn- og helst skilvirkari en einkabíllinn. Ég þarf að vera jafnfljótur og helst fljótari með strætó í vinnuna en á einkabílnum. Þá er björninn unninn. Upplifi einkabílistinn að strætó fari frammúr á Kringlumýrarbrautinni, þar sem strætó ætti að vera með forgangsrein, þá gæti hann byrjað að forgangsraða upp á nýtt.
Ég legg því til að í stað þess að strætó sé gjaldfrjáls þá verði skattpeningar nýttir í að bæta við forgangsreinum á helstu samgönguæðum höfuðborgarsvæðisins. Einnig þarf að fjölga leiðum með tíðari ferðir, hálftíma bið getur orðið til þess að fólk verði úti eða kaupi sér bíl.
Álykta gegn hugmyndum um gjaldfrjálsan strætó | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.10.2007 | 10:00
Help us help the planet
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2007 | 18:20
Fyrsta vikan
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Bjössablogg
Tenglar
Mínir nánustu
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 24346
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar